D r Dælme Rarr! (o:
30.08.2007 18:24:00 / aniger

Í minningu besta vinar míns

hæhæ :) Mig langadi ad skrifa nokkur ord í minningu besta vinar míns, Jónatans sem hefdi ordid 20 ára í dag!

 

Til hamingju med daginn ástin mín! :** thennan stóra dag... hefdi ordid tvítugur! og haldid svaka partý! og blasta græjurnar adeins eins og thú varst vanur ;)

Vill ad thú vitir ad ég hef sko ekki gleymt thér... og mun aldrei gera! eins og ég var búin ad lofa :P thú átt alltaf thinn sérstaka stad í hjartana mínu ;* og thar ertu vel geymdur, thangad til vid hittumst á ný..

Thad er svo sárt ad husga til thess ad thú sért ekki hérna lengur.. mig langar svo oft ad hringja í thig, og tala vid thig á msn eins og vid vorum vön daglega..  sakna thess svoooo oft! ad geta ekki talad vid thig :S

Ef thú bara vissir.... hversu oft ég hugsa til thín... í hvert skipti sem ég horfi til himins hugsa ég til thin, og í hvert sem ég horfi upp í stjörnubjartann himininn hugsa ég til thín.. og ég veit ad ég tharf ekkert ad óttast.. thú ert med mér alla daga.. ég finn thad. Thú ert litli verndar engillinn minn ;)

Ég sakna thin alltaf jafn óendanlega mikid :( og vildi óska thess ad thú værir hér.. svo vid getum kúrad okkur saman eins og vid gerdum oft :)

Vona svo innilega ad thú hafir thad gott thar sem thú ert, á stadnum sem enginn sér... Ég elska thig ástin mín :*** Svo lengi sem hjartad mitt slær

Bestu kvedjur sendi ég til thin! og vona ad thú horfir nidur til mín og brosir annad slagid :)og ef thú ákvedur ad gera thad í kvöld, og sérd kveikt á kerti... thá veistu ad thad logar til minningar thér!

 

Thín bestasta vínkona Regína

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 20:35:51 / aniger

undur og stórmerki!

já góðir hálsar..... ég ákvað að blogga smá...afþví að það er svo "stutt" síðan ég gerði það síðast! mwuhahhaha..  af mér er bara allt gott að frétta sko.. er ennþá að vinna á leikskólanum í kópavogi, og líkar bara mjög vel!! ég á ekki eftir að geta farið frá þessum yndislegu börnum :S Ég fór til dk um páskana að heimsækja ástina mina :* æðislegt að sjá hann aðeins eftir 3 mánuði..!já vá.. er meira en hálfnuð með dvöl mína á íslandi! tíminn flýgur svo hratt... maður varla nær að blikka augunum og tíminn er floginn af stað :O

jájájá.. svo er bara farið að styttast í eurovision... er einhver game í djamm??? plz let me know ;)  heheh

Hún Dóra vínkona mín og Hrannar frændi minn "big bro" voru að eignast strák í gær og vil ég óska þeim innilega til hamingju! hlakka ekkert smá til að koma og sjá krúttið :D

ég lenti í rosalegu ævintýri í dag í vinnunni....úffff hehhe en málið var að ég og ein önnur stelpa sem er að vinna á sömu deild og ég, við fórum í göngutúr + strætóferð með 9 krakka... það var æðislegt veður.. sól og frábært... við fórum í strætó og löbbuðum svo smá spotta þangað til að við vorum komin á áfangastað.. gerðum það sem við ætluðum og förum svo sömuleið til baka.! en þegar við erum að leggja í hann tilbaka.. þá kemur þessi líka æðislega rigning, snjókoma, slydda name it...! og við vorum eins og ég veit ekki hvað... ég og við öll vorum gjörsamlega á floti! og allt sem var í vösunum minum, síminn , myndavél og money... heheh... svo þegar við komum í leikskólann aftur endaði það með því að ég skellti buxunum minum, sokkabuxunum og nærbuxum í þurkarann!!! hahahha... já ég var sko BLAUT!

jæja.. er þetta ekki orðið nógu gott af því góða :P

og já by the way.. vantar smá hjálp!! á að syngja 2 lög á disk í lok söngnámsins... viljiði ekki koma með tillögur um hvaða lög ég gæti valið ;)

Hafið það bara sem allra best.. og endilega fariði að láta heyra í ykkur :D

 - An1 is out


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 22:20:10 / aniger

:)

hæhæ :D langadi ad henda inn eins og einu bloggi :) bara ad láta ykkur vita adeins af mér :P það er bara frábært að vera kominn á klakann góða ! er bara að vinna eins og mófó og svo er það ræktin á hverjum degi eftir vinnu..! alveg nóg að gera sko :D sem er bara ekkert nema gaman :) er komin með vinnu á leikskólanum dal í kópavogi! and i love it!! þau eru svo æðisleg krakkarnir! verður sko leiðinlegt að hætta þarna eftir hálft ár! hehe

já það er nu eitthvað lítið að frétta svosem.. er að fara til eyja á morgun! og verð yfir helgina..! újé.. og hún Ernan mín er líka að fara :D weeee

já.. hef frá litlu að segja.. hittumst bara hress! og ekkert stresssssss hehe :P

cya hunnies


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 20:55:22 / aniger

tadddddarrrada

Jæja.. svo margir búnir ad vera med thetta á blogginu sínu, thannig ad ég ákvad ad setja thetta líka á mitt :D koma svo peeps... allir ad taka thátt!!!

1. Nafn þitt?
2. Hvar kynntumst við?
3. Hvað er miðnafnið mitt? 
4. Hvernig þekkiru mig eða hvernig veistu hver ég er?
5. Hversu lengi hefurðu þekkt mig?
6. Hversu vel þekkiru mig? 
7. Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig?
8. Hvað er ég gömul?
9. Afmælisdagur minn er?
10. Háralitur?
11. Augnlitur?
12. Á ég systkini?
13. Hefuru nokkru sinni öfundað mig?
14. Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
15. Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig ?
16. Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á?
17. Hver er minn besti eiginleiki?
18. Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn?
19. Er ég nokkuð fyndin?
20. Er ég svarti sauðurinn eða fylgi ég öllum reglum?
21. Hef ég einhverja sérstaka hæfileika?
22. Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað myndi það vera?
23. Hvað heldurðu að verði um mig í framtíðinni?
24. Heldurðu að ég eigi eftir að giftast?
25. Hvernig manni/konu heldurðu að ég eigi eftir að giftast? 26. Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman?
27. Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?
28. Hvaða vin held ég mest uppá?
29. Hef ég hjálpað þér?
30. Þykir þér vænt um mig?
31. Er ég sannur vinur?
32. Elskarðu mig?
33. Langar þig að faðma mig?


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 15:24:43 / aniger

smá blogg

Gódan daginn! já ákvad ad blogga smá.. thó ad thad sé nú ekki rosa mikid ad frétta. Bara láta ykkur vita ad ég sé á lífi.. hehe ;) er ekki ad gera mikid af mér... er lasin.. já greyid ég:S svaf ekkert í nótt8| ömurlegt.. er gjörsamlega búin ad vera ad hósta upp lungunum :/ vorkennidi mér ekki ? :)

Ég er farin ad hlakka til jólanna =) enda ekki nema rúmur mánudur í thau.. verd ad fara ad drífa í ad kaupa jólagjafir :O já já já.. held ad ég verdi hjá fjölskyldunni hanns ronnies á adfangadag.. verdum 15 8| og thid getid ímyndad ykkur pakkaflód!! verdur bara gaman af thvi =)

Já... svo er líka farid ad styttast í ad ég komi heim! er farin ad hlakka til...!! verdur bara ædi! hlakkar til ad vera med fjölskyldu og vinum! eitthvad meira en ég hef verid s.l mörg ár.. já já já :) yeps gódir tímar framundan :D

Jæja.. ætla ad láta thetta gott heita í bili... thangad til næst.. hafid thad gott :)  og kvitta svo  ;) alltaf fullt af heimsóknum en engin comment 8|

Aniger is out


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 18:36:36 / aniger

...

Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið, svo 
að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar
okkur. Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast á
öðrum, en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar
sem hafa opnast. Kannski er bestu vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á
veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú
hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar. Kannski er satt að við vitum ekki hvað
við höfum átt þangað til að við missum það, en það er líka satt að við vitum oft
ekki hvers við höfum saknað fyrr en við öðlumst það. Það eitt að gefa
einhverjum alla okkar ást tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti. Ekki
búast við ást í skiptum fyrir ást; bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra
og ef það gerist ekki, skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu
hjarta. Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður,
klukkutíma að láta sér líka við einhvern og einn dag að verða ástfangin af
einhverjum, en það getur tekið lífstíð að gleyma einhverjum. Kannski ættir þú
að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa, vegna þess að eitt bros
getur dimmu í dagsljós breytt. Ekki fara eftir útliti, það getur blekkt. Ekki fara
eftir auðævum, þau geta horfið. Finndu einhvern sem fær hjarta þitt til að
brosa. Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig voru brosandi.
Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og allir í kringum þig grátandi

- Aniger


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 23:30:18 / aniger

:)

       R - you are on of the best in bed.

       E - You have a nice ass.

       G - You never let people tell you what to do.

        I - Love is something you deeply believe in.

       N- you are the sexiest motherfucker out there.

       A- Pretty damn good kisser.

Jámm thad er eitthvad til í thessu ;) heheh

A- Pretty damn good kisser.
B-You are always fun when it comes to meeting new people.
C- you\'re wild and crazy
D-You have trouble trusting people.
E- you have a nice ass
F-People totally adore you
G-You never let people tell you what to do.
H-You have very good personality and looks.
I-Love is something you deeply believe in.
J-Everyone loves you.
V-You are not judgemental.
K- You like to try new things
L- you are too gangster.
M-success comes easily to you.
N- you are the sexiest motherfucker out there
O-You love foulplay.
P-You are popular with all types of people.
Q-You are a hypocrite.
R- you are one of the best in bed.
S- You are an excellent friend.
T-You\'re loyal to those you love.
U-You are really chill.
V-You are not judgemental.
W-You are very broad minded.
X- You never let ppl tell u wat to do
Y-One of the hardest gangsters alive

endilega skiljidi eftir comment og segidi mér ykkar útkomu :P


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 00:04:56 / aniger

:)

Fann thetta á einni sídu og ákvad ad setja thad inn.. finnst thad svo flott^^

Vinur er sá sem.....

Tekur þér einsog þú ert
Trúir á þig
Hringir í þig bara til þess að segja "hæ"
Gefst ekki upp á þér
Fyrirgefur þér mistök þín
Hjálpar þér
Býður þér stuðning
Minnir þig á það góða í fari þínu
Dæmir þig aldrei
Skilur þig ALLTAF
Segir þér sannleikann þegar þú þarft að heyra hann
Þykir vænt um ÞIG en ekki útlitið þitt
Gengur við hliðina á þér
Tekur utan um þig þegar þig vantar stuðning
Hlustar á þig þegar þú þarft að létta á hjarta þínu
Er til staðar fyrir þig
Kemur þér til að hlægja
Huggar þig þegar þér líður illa
Myndi ganga yfir Everest ef þú þyrftir á honum að halda hinumegin

Vinur er sá sem þú getur ekki verið án!


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 22:38:32 / aniger

test

Góda kveldid ;) langadi ad henda inn nokkrum myndum.. er ad prófa hvernig thetta virkar :D

Setti inn nokkrar myndir af sætustu dúllunum minum =)

Silva Rún í Bilka, ad máta jakka sem hangir á herdartréi hehe ;)

Kristó ad bjóda mér góda nót.. hehe.. gódur ;) 

Ég og Silva á gódri stund :D 

Inga Dís krúsídúlla  

Svooo sæt thegar hún sefur.. :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 12:29:13 / aniger

04 - 01 - 07

Hæ hæ =) ætli thad sé ekki kominn tími á smá blogg... hehe.. thad var samt med vilja ad ég bloggadi ekki í mánud.. oh well... ég er med gódar fréttir!

Thann 4. janúar 2007 mun ég lenda á Keflavíkur flugvelli =) já... ég er ad koma til landsins! og verd í hvorki meira né minna en 5 mánudi!!! ætla ad koma heim og vinna. prófa ad búa á Íslandi, thar sem ég hef ekki búid á landinu í 7 ár! vá hvad thad er langur tími.. ég er ordin alltof dönsk hehe ;) En thetta verdur örugglega bara gaman ^^  hlakkar geggjad til.. en er samt kvídin :S veit ad thetta verdur erfitt..en ég veit ad ég á fullt af gódum vinum og fjölskyldu sem munu hjálpa mér og styda vid bakid á mér =)

Thad er eiginlega ekkert ad frétta annad en thetta.. thannig ad ég er ad spá í ad láta thetta gott heita, thangad til næst.. vildi bara deila thessu med ykkur.

Over and out - Aniger


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 10:22:04 / aniger

Jónatan Helgi Rafnsson - f. 30. ágúst 1987 d. 01. maí 2006

Til hamingju med daginn ástin min ;*** sakna thín á hverjum degi!

Hæ allir! í Dag hefdi Jónatan, minn besti vinur ordid 19 ára! og langar mig til ad minnast hans med ordum sem ég skrifadi til hans thegar ég var á íslandi í jardarförini hans í maí sl. :cry: ég vona ad thid gefid ykkur smá tíma í ad lesa thad^^

 

Elsku besti vinur minn! Ég trúi því ekki að þú sért farinn frá mér, búinn að yfirgefa okkur hérna á þessari jörð. Eftir sitjum við með tárin í augunum og finnst erfitt að sætta okkur við það sem gerðist. Ég trúi því að þér líði vel þar sem þú ert núna. Þér var geinilega ætlað eitthvað miklu stærra hlutverk þar en það sem þú gegndir hér á jörð. Og skil ég vel hversvegna guð hefur valið þig.

Ég veit að þú ert með okkur og vakir yfir okkur öllum, og ég finn að þú ert nálægur þó að þú sért í raun og veru í óra fjarlægð. Hérna sit ég og reyni að koma orðum og tilfinningum niður á blað og finnst það svo erfitt, vegna þess að mér finnst ég vera hálf tóm. Mér finnst eins og það vanti hinn helminginn af mér, því án þín, besti vinur minn, er ég aðeins hálf. Það eina sem heldur mér uppi á þessum erfiðu tímum eru allar þessar yndislegu minningar sem við áttum saman, eru þær ófáar því ég á alveg heilt haf af minningum um þig og munu þær lifa að eilífu í hjarta mínu. Þú Jónatan varst alltaf svo góður við allt og alla og hjálpsamur, þú þurftir aldrei að hugsa þig um tvisvar ef það var einhver sem þurfti á hjálp að halda.

Þú varst alltaf svo brosmildur og lífsglaður, þú gast alltaf fengið mig til að brosa, enda varstu alltaf í svo góðu skapi, svo yndisleg persona. Við höfum gengið í gegnum ýmislegt saman.

Ef mér leið ílla þá komst þú mér í gott skap, ef þér leið ílla þá leitaðir þú til mín. Eins og þú sagðir, þá gastu treyst mér fullkomlega fyrir öllu og öfugt. Það gastu, því ég á okkar leyndarmál sem fara aldrei neitt lengra.

 

Ég gleymi því aldrei þegar ég kynntist þér, það var rétt fyrir þjóðhátíð árið 2002. Þú varst svo flott klæddur og sætur, náðum við strax mjög vel saman, því eftir það höfum við verið alveg bestu vinir. Manstu ekki eftir því þegar þið vinirnir voruð allir í gulu göllunum, og hvernig  þið hoppuðuð eins og vitleysingar þegar Jet Black Joe var á sviðinu, og gítar partýinu hjá Andra og sindra sem var snilld. Það var án efa eina besta þjóðhátið sem ég hef upplifad.

 

Ég spurði þig eitt sinn hver versta minningin þín með mér væri, og þú svaraðir “þegar ég var að gráta á tröppunum” Það var þannig að við vorum að drekka heima hjá vin okkar sumarið 2003, það var svo gaman hjá okkur, og var ferðinni heitið niður í bæ. Foreldrar þínir voru ekki alveg nógu sátt með það og komu og náðu í þig. Í sama mund og mamma þín birtist komu bara tár, þú varst farinn að gráta afþví að þú vildir ekki fara heim. Ég man að mamma þín bauð mér að koma með þér heim, og hefði ég gert það ef þið hefðuð ekki verið svo fljót að fara. Hinsvegar á ég bara eina slæma minningu um þig, og er það þegar þú ákvaðst að stinga þér í tjörnina á þjóðhátiðinni 2004. Það var alveg hræðileg lífsreynsla, ég var svo hrædd um að missa þig. Eftir slysið skammaði ég þig fyrir að gera okkur þetta, og þú lofaðir að gera mér þetta ekki aftur. Hræðslan mín varð að veruleika, ég missti þig, og er söknuðurinn erfiður. Þegar ég hitti þig siðasta sumar og umvafði þig örmum mínum, datt mér ekki í hug að það yrði í síðasta skipti og finnst svo sárt að hafa ekki fengið aðeins meiri tíma með þér.

Ég sakna þín óendanlega mikið og mun gera það um ókomna tíð. Vildi einna helst óska þess að þetta hefði bara verið vondur draumur sem ég væri að vakna upp frá en svo er ekki.

Ég á aldrei eftir að sætta mig við það að þú sért farinn frá mér, og ég fái aldrei ad sjá þig aftur, ég læri bara að lifa með sorginni og mun ég varðveita allar þessar góðu minningar um þig, þær eru mér svo dýrmætar.

Ég kom alla leið frá Danmörku til þess að kveðja þig, elsku vinur minn, mér fannst það ekkert nema sjálfsagt, ég veit að þér þótti rosalega vænt um að sjá mig í kirkjunni,  þú hefðir gert slíkt hið sama ef ég hefði farið. Athöfnin þín var alveg ótrúlega falleg og það var greinilegt hvað það voru margir sem þótti vænt um þig, enda varstu yndislegur strákur með hjarta úr gulli, ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér, það voru ekki allir svo lánsamir.

Ég var að róta í símanum mínum og fann eitt sms sem þú sendir mér fyrir 2 árum síðan, ég breytti því smá. Mér leið svo vel þegar ég las það, afþví að það var frá þér, elsku besti vinur minn. Mér fannst það vera svo fallegt og ég vildi bara segja þér að ég hugsa alveg eins til þín og þú hugsaðir til mín, með þessum skilaboðum veistu alveg nákvæmlega hvernig mér líður.

Ég finn það þegar þú ert farinn hvað ég elska þig mikið,

Ég fann það þegar þú varst hjá mér hvað mér þótti vænt um þig.

Niðurstaðan er sú að ég hugsa stöðugt til þín.

Þú komst til mín í draumi til þess að kveðja mig, aðeins nokkrum klukkustundum áður en þú fórst og þykir mér mjög vænt um það. Ég heyrði rödd þína, þú hljómaðir rosalega ánægður og glaður, fann ég bæði fyrir brosi þínu og hlátri. Skilaboðin hljómuðu svona:

 

Hæ sæta, ég er búinn að sofa svo rosalega lengi, og núna vil ég ekki sofa lengur.

Þetta voru skilaboð um það að þú vildir verða frjáls og að þér liði vel þar sem þú ert núna. Takk kærlega fyrir þessa fallegu kveðju.

Mér líður svo ílla í hjartanu mínu Jónatan, og er það vegna þess að ég er búin að missa það besta sem ég átti, besta vin minn. Það er svo satt það sem sagt er, að maður veit ekki hvað maður hefur átt fyrr en misst hefur. Ef þú bara vissir hvað það var erfitt að koma heim til Íslands og kveðja þig. Án efa eitt af því erfiðasta sem ég hef þurft að ganga í gegnum, og hef ég gengið í gegnum margt á minni lífsleið. Við fáum litlu ráðið, því lífið er óútreiknanlegt.

Það er erfitt að vera hérna á Íslandi núna, afþví að ég var alltaf vön að hitta þig og við gerðum eitthvað skemmtilegt saman, þó að það hafi ekki verið nema að vera saman, nálægt hvoru öðru, það var alveg nóg, við þurftum ekki að segja neitt, því alltaf leið okkur jafn vel saman.

Alltaf þegar mér leiddist hringdi ég í þig. Um daginn leiddist mér og mér fannst erfitt að geta ekki hringt í þig eins og ég var nú vön að gera, og féllu þá ófá tárin. Það verður erfitt að koma heim og hafa þig ekki hér.

Ég vil að þú vitir hversu fallega ég hugsa til þín. Þú ert ljósið mitt í myrkrinu, bjartasta stjarnan og fallegasti engillinn, og ég trúi því að þú eigir eftir að leiða fjölskylduna þína, mig og aðra vini í gegnum lífsleiðina. Ég mun leita til þín þegar mér líður ílla, ég trúi því að þú heyrir í mér.

Þú bjargaðir lífum þriggja barna á Spáni og er það ekkert lítið afrek. Þú ert algjör hetja! Eins og þú sagðir þegar þú varst lítill, að þú ætlaðir að verða hetja.

Já Jónatan, þú ert sannkölluð hetja, og ég er svo stolt af þér. Ég táraðist þegar ég frétti af þessu afreki. Ég vil líka að þú vitir að ég er svo stolt af fjölskyldu þinni, þau eru búin að standa sig svo vel. Ég fann fyrir hlýju viðmóti og góðri nærveru þeirra. Þau tóku mér með opnum örmum og þótti mér mjög vænt um það. Þetta er svo sárt og svo erfitt, elsku vinur minn, en ég skal reyna að vera sterk, reyni að vera sterk fyrir þig.

Þú varst, þú ert, og þú munt alltaf vera besti vinur minn! Enginn getur tekið þinn stað, þú varst alveg einstakur og átt alltaf þinn stað í hjarta  mínu. Heimurinn er og verður aldrei sá sami án þín elsku Jónatan Helgi.

Ég elska þig svo mikið ástin min :*** núna og að eilífu.

Sofðu rótt elsku Jónatan minn, guð og englarnir geymi þig, og við hittumst svo á ný þegar minn tími kemur.

 

Another month,

Another year,

Another smile,

Another tear,

Another winter

A summer too,

But there will never be another you!

Love always and 4 – eva

 

Þín besta vínkona Regína

 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 06:15:58 / aniger

Bloggtími!! :D

Hellú... já, thad er verid ad reka á eftir mér í blogginu.. thannig ad ég ákvad ad gefa mér smá tíma í ad blogga! 8| bara fyrir Andra :D

Thad er bara svo mikid sem ekki neitt ad frétta af mér hehe... voda lítid búid ad gerast sídan ég bloggadi sídast.. kannski thess vegna sem madur hefur ekkert bloggad ^^ ¨

Jú thad er eitt! er ad spá í ad hætta í thvi sem ég er ad læra núna og fara út í allt annad.. langa gedveikt mikid ad vera í leikskóla, held ad thad sé geggjad gaman! thannig ad allar thær sem hafa verid í leikskóla, endilega commenta og segja mér hvernig ykkur finnst? :D

damn.. ég er farin ad sakna íslands!! og ekki meira en 3 og hálfur mánudur sídan ég var thar :P svona er thetta.. Annars er ekki mikid ad frétta, annad en thad ad mútta verdur 40 ára núna 26. ágúst! thannig ad thad verdur BIG PARTY!!! wuhuhuhuh

Hey, já hvad er málid med thetta lid á íslandi.. madur getur bara varla farid á djammid nidri í bæ án thess ad thad sá rádist á mann...! pabbi var ad segja mér ad hann ahafdi farid á djammid um helgina...( hann var ad vísu einn) en já thad var einhver hópur sem ætladi ad rádast á hann! 8| en hann reddadi sér med thvi ad hringja á lögguna^^ og svo hringdi hann aftur thegar hann var kominn út (thóttist hringja á leigubíl) lét thá viti ad hann væri nú fyrir utan, svo allt í einu heyrist í strákunum " shit löggan er hérna" LOL, fávitar!

Anyways, ég er í skólanum, thannig ad ég verd víst ad fylgjast med hérna! Kved ykkur í bili

Aniger is out


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 10:03:50 / aniger

komin heim..

Hæ fallega fólk, og thid hin ;P

Thá er ég loksins komin heim frá Ítalíu! thad var gegt gaman, og ROSALEGA heitt.. thad var yfir 40 grádur á daginn, og 30-35 grádur á kvöldin..úfff.. og thad var án gríns yfir 40 stiga hiti inni í herberginu minu á nóttuni.. var ekki líft! Ferdin heppnadist bara nokkud vel skal ég segja ykkur... fyrir utan eina dömuna í hópnum.. thad var alltaf eitthvad, ALLA 14 dagana.. fór í fýlu, var eitthvad leid og var grenjandi, eda var¨bara ómöguleg og leidinlega ad hlusta á.. og ofan á thad toppadi hun allt sem hægt var ad toppa.... OOOOOOOOOOOJJJJJJJJ.. ég bara átti ekki til ord.. og erum vid ad tala um elstu manneskjuna í hópnum, 25 ára! og hun hagadi sér eins og hún væri yngst.. en jamm anyways..hun er thunglynd og á tvöfuldum skammti lyfja, afthvi ad hun fór til Ítalíu, og eitt kvöldid var hún í svo gódu skapi og vildi fara út á lífid...sem voru mestu mistök í heimi... en paradís fyrir okkur hin, thvi vid vorum laus vid ad hlusta á hana..hún og kærastinn fóru semsagt á diskotek nidri í göngugötunni.. og á medan voru hinir 2 strákarnir semsagt ronnie og Casper ad ákveda ad gefa henni sem vatn thegar thau kæmu heim, their settu 3 plastglös af vatni ofan á hurdina nidri í gangi, thannig ad  hun vonandi  fengi vatn thegar thau kæmu heim :P:klikk: En thetta vard allt ödruvísi, ca einum og hálfum tíma seinna kemur kærastinn hennar heim med thvílikum látum, og ég vakna og vek Ronnie. Vid vorum buin ad hlada hyllum og náttbordum og dóti fyrir hurdina svo thad væri ekki hægt ad opna.. hahah, thvi Ronnie var svo hræddur um ad fá vatn á medan hann svaf.. en anyways, thá kom hann og dró Ronnie med sér út á boxer 8| afhtvi ad daman væri alveg crazy. Hún fékk eitthva kast... var hent út af diskótekinu og alveg klikkadist.. lagdist í götuna, öskradi, slóg og sparkadi, bílar stoppudu og fólk og hélt ad kærastinn hennar væri ad lemja hana! eins gott ad hann var ekki hirtur af löggunni..thegar thau voru komin næstum thvi heim, thad var svona brú sem madur thurfti ad fara yfir til ad komast í íbúdirnar.. og thá reif hún sig úr öllum fötunum.... ÖLLUM.. hún kom alls nakin heim takk fyrir.. og greyid ég sá thetta allt saman..! ég veit ad thad er ekkert fallegt ad segja thetta, en thetta var EKKI fögur sjón! stelpan er FEIT...ojbjakk. Kærastinn hennar var tilbúin ad hætta med henni á stadnum! og sagdi vid bædi mig og Ronnie ad thetta væri búid! en thad var ekkert hægt ad gera thad í midri ferd.thannig ad Ronnie sagdi honum ad leika, og bída thangad til ad vid kæmum heim.. en nei nei.. viti menn.. thegar vid vöknudum næsta dag,var hann búinn ad fyrirgefa sinni.. thvi hún var alveg viss um ad thad hefdi einhver sett eitthvad í drykkin hjá henni... hún fékk einn drykk inni á diskotekinu,...hmmmmmm... hún var wasted ádur en thau fóru út takk fyrir.. og kærastinn trúir thvi líka ad eitthvad hafi verid sett í drykkinn..! en vid hin höldum bara ad thetta hafi verid drykkja! og afbrýdissemisKAST plús thessi lyf sem hun tekur..

Og vid hin 4 ætlum aldrei aftur neitt med theim 2... alltaf eitthvad vesen med thessar kærustur sem hann velur sér.. thvi sú sídast var líka martröd...! en jæja nóg um thad!

Vid hin skemmtum okkur bara vel, vid vorum alla daga vid og í sundlauginni, sem var svo notarlegt thvi hitinn var svo mikill, svo vorum vid í vatnsgardi, sem btw var gegt dýrt.. mæli ekki med thvi! Vid fórum í tívoli, og spilahallir, göngugötuna löbbudum vid fram og tilbaka, og höfdum thad huggulegt. Ég keypti mér ekki mikid í thessari ferd, tösku, veski, hárbönd,gjafir and thats it.. peningarnir fóru í mat og drykki 8|

Thad var thvílik upplifun ad vera á Ítalíu thegar Ítalir urdu heimsmeistarar... their urdu alveg crazy.. allt brjálad í bænum, hundar voru klæddir í ítalska fánann, hellt yfir sig tunnu af bjór/vatni, bílar flautandi um allan bæ, og hringtorgin voru trodin af fólki og svo kom bíll fullur ad fólki, sem var hoppand og syngjandi.! geggjud upplifun.. bara verst ad ég tók ekki myndavélina med mér nidur í bæ.. :$

Vid komum heim til Dk í thennan flotta hita..sól og 30 stiga hiti... og svo er ég ordin brún og sæt :D elska sólina.. en jæja, thetta er ordid soldid langt blogg... veit ekki hvort fólk nenni ad lesa.. haha

HÖRDUR!!! ef thu lest thetta blogg.... fardu ad kíkja í heimsókn!! hef ekki séd thig í 2 ár.. án gríns eda eru thau ordin 3... issss thetta bara gengur ekki..

Loveya all peeps :)

 - Regina


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 23:24:40 / aniger

ég er á lífi!

Hæhæh :) já ég er sko ekki búin ad vera dugleg vid ad blogga núna undanfarid..     búid ad vera svo mikid ad gera hjá mér!

já og svo misstum vid internetid í 8 daga...! 8| en sem betur fer komid í lag aftur :D bwaaa.. er búin ad vera eitthvad svo down upp á sídkastid.. veit ekki alveg why.. en vona ad gledin fari ad taka völd!! en sídustu mánudir eru búnir ad vera svo erfidir.. eftir adbesti vinur minn fór frá mér :cry:

Svo er ég svo ósátt vid thad hvad thad er ordid mikid um slysin!! og alltof  mikid af ungu fólki ad yfirgefa thennan blessada heim! sko ekkert sanngjarnt :s við ættum að staldra við og spá í hvað lífið er dýrmætt og ómetanlegt og alls ekki sjálfsagt. Hugsun sú að halda að maður sé minni maður en aðrir og telja líf sitt vera einskyns virði..já thad er sko eitthvad til í thessu.

og svo yfir í punkta frá mínu lífi  ;)

  • Pabbi kom í heimsókn til min og stoppadi í viku, gegt stud^^
  • 20. júní áttu tengdó silfurbrúdkaup! con gratz
  • 24. júni var svo veislan.. svakalegt stud!
  • Ég neyddist víst til ad syngja fyrir brúdhjónin og alla adra gesti.. sem voru alls 75 8|
  • ekkert var undirbúid.. en thad gekk víst samt vel og ég fékk mikid hrós
  • ég er ad fara til ÍTALÍU eftir adeins 2 daga!!!!!!!!!!!!!!!!!!! hlakka svo til ad fara í sólina
  • morgundagurinn fer í ad pakka og taka adeins til hérna heima
  • ég sakna Íslands!
  • og mest af öllu sakna ég Tanna, besta vinar mins :( alveg óendanlega mikid!!!!

 

Thetta var svona einna helst.. thid sem nenntud ad gefa ykkur tíma í ad lesa thetta.. endilega commenta!

Take care

 - Regina


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 10:26:14 / aniger

my birthday :D

Hæhæ vinir og vandamenn :D JÀMMS ég ég afmæli í dag.. stór dagur! er ad skrída í 30. aldurinn hahahaha... eldgömul bara :P

Thad er búid ad vera geggjad vedur hérna í Danmörku.... kannski adeins OF gott... thví ég er sólbrunnin as HELL.... gat varla sofid fyrir bruna.. :S awww heheeh.. Ég sat úti í gardi í 2 tíma í gær.. og endadi svona röndótt bara.. alveg hvít og raud haha.. thad var búid ad vara vid ózonlaginu :S en kjáninn ég var ekkert ad spá í thvi.. ég get líka venjulega tholad ad vera úti í sólinni heillengi.. en nei nei.. sólin var bara med einhverja árás á mig! var sú eina af okkur öllum sem sátum úti í gardi sem brenndist.. úff :$

Í fyrradag hélt fjölskyldan mín upp á afmælid mitt :D fórum á ströndina og höfdum thad gegt nice.. med nesti og fórum í völundarhús hahaha =) rosa gaman hjá okkur.. og thau gáfu mér fullt af fötum, thannig ad núna er ég tilbúin til ad fara til Ítalíu weeee

og svo í gær fór ég á söngleik! Silva og Inga Dís voru ad sýna :D thad var rosalega flott hjá theim systrum, og svo voru thau med svona surprice súkkuladi köku handa mér thegar vid komum heim.. vel skreytt og med 21 ´kerti á :D hehhe og svo sögdu thær "hvad áttu marga kærasta" og thad passadi líka svona vel ad thegar ég var búin ad blása, thá var eitt kerti eftir ;O og var thad hann Ronnie minn... heppinn ég ad eiga bara einn HA :)

svo í morgun kom Ronnie minn inn til minn og vakti mig med afmælissöng.. algjör dúlla sko.. og svo kom frænka hans Ronnies sem býr hérna á efri hædinni, sagdi mér ad koma út í gard thvi thau voru med pakka handa mér 8| thannig ad ég dreif mig út í gard, og fékk alveg 4 pakka ! fékk úr og buxur og bol frá módursystur hans Ronnies og manninum hennar og svo fékk ég bol og augnskugga frá theim á efri hædinni... dekurrófan ég sko.. tharf ad fara ad taka til í fataskápnum minum...hann er trodinn núna og er ég búin ad fá helling af fötum 8| en thetta reddast allt saman

Veit svo ekki alveg hvad dagurinn býdur upp á.. thad er enn betra vedur í dag enn var í gær... og má varla vid thví ad fara út í sólina... hehehe en ætla nú samt ad fara eitthvad út.. verd bara ad vera í bol sem nær yfir allt brennda svædid... hehe aulinn ég!

En jæja... ætla ad kvedja ykkur í bili!

kv. Regína afmælisbarn :)


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6